kastro.

Sjálfstætt íslenskt tæknifyrirtæki

Vefsíðugerð og innviðir fyrir íslensk fyrirtæki.

Kastro hannar og smíðar vefsíður, hýsir þær og heldur þeim við, og veitir ráðgjöf um Proxmox- og Ceph-innviði, skýjalausnir og tæknimál.

Andri Pétur Hafþórsson
Andri Pétur HafþórssonStofnandi og rekstraraðiliandri@kastro.is

Það sem við gerum fyrir viðskiptavini.

Samhliða eigin vöruþróun tökum við að okkur afmörkuð verkefni fyrir fyrirtæki. Umfang og tímasetningar eru staðfest áður en vinna hefst.

Staða nýrra verkefna: Takmarkað svigrúm.

Kastro Vefir

Vefsíðugerð, endurnýjun og viðhald. Skoðaðu verkefni, verð og hvað er innifalið.

Kastro Vefir

Proxmox & Ceph ráðgjöf

Proxmox og Ceph ráðgjöf á Íslandi. Reynsla af Proxmox frá 2017 og rekstri eins stærsta Proxmox-umhverfis landsins. Hönnun, yfirferð, flutningar og bilanagreining.

Skýjalausnir og innviðir

Skipulagning og framkvæmd verkefna í skýjaþjónustu, netþjónum og netkerfum. Val á þjónustuaðilum byggir á þínum þörfum, kostnaði og kröfum um staðsetningu gagna.

Skýjalausnir og innviðir

Komið í loftið.

Vefir sem Kastro Vefir hefur hannað og smíðað fyrir íslensk fyrirtæki.

Öll verk fyrir viðskiptavini

Það sem við rekum.

Eitt eigið verkefni frá Kastro. Hýsill er í bið.

  1. Hýsing fyrir hugbúnað

    Hýsill

    Íslenskur vettvangur til að smíða, setja upp og keyra hugbúnað. Hugmyndin er einföld: tengdu GitHub og fáðu virkt forrit yfir HTTPS án þess að þurfa að sjá um netþjón.

    Þróunin er í bið vegna anna í öðrum verkefnum.

    • Hingað til aðeins lokuð prufukeyrsla
    • Ekki opið fyrir skráningu
    • Engin dagsetning hefur verið ákveðin

Öryggisþjónustan og ókeypis öryggisverkfærin Lookup, Dmark, DMZ og Critical.is eru nú hjá Garmi, systurmerki Kastro. garmur.is

04 · Lén til sölu

Lén til sölu. Opið fyrir tilboðum.

Kastro á þessi .is-lén og tekur við tilboðum í þau. Ekkert ásett verð; sendu tilboð og við svörum persónulega.

.isTIL SÖLU

homie.is

Stutt og auðmunanlegt lén sem hentar vel fyrir vöru, app eða þjónustu fyrir heimilið.

Verð
Tilboð óskast
Afhending
Rétthafaskipti hjá ISNIC
Gera tilboð →
.isTIL SÖLU

hestur.is

Íslenska orðið yfir hest. Gott lén fyrir hestamennsku, ferðaþjónustu eða íslenska hestinn.

Verð
Tilboð óskast
Afhending
Rétthafaskipti hjá ISNIC
Gera tilboð →

Öll tilboð eru skoðuð. Kastro áskilur sér rétt til að hafna hvaða tilboði sem er.

Andri Pétur Hafþórsson

Andri Pétur Hafþórsson

Maðurinn á bak við Kastro.

Andri Pétur Hafþórsson þróar vörurnar og er tengiliður vegna þjónustu og tilkynninga um öryggisveikleika. Bakgrunnur hans er í kerfisstjórnun, tækniinnviðum, netöryggi og hugbúnaðarþróun.

Kastro er lítið fyrirtæki í rekstri eins manns. Þú hefur beint samband við þann sem ber ábyrgð á vinnunni.

Persónuleg réttindi og reynsla Andra

ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.

Endurnýjaði tækniinnviði RVX, hannaði nýja starfsstöð með kröfur TPN Gold að leiðarljósi og leiddi fyrirtækið í gegnum vottunarferlið.

Þessi réttindi og reynsla tilheyra Andra. Þau fela ekki í sér vottun á Kastro eða vörum þess. Öryggisþjónustu veitir Andri undir merkjum Garms.

Öryggistilkynningar: andri@kastro.is

Beint samband.
andri@kastro.is

Spurningar um vefi, innviði, Hýsil eða verkefni? Hafðu beint samband. Við tökum að okkur afmörkuð verkefni eftir samkomulagi. Fyrirspurnir um vörur eru velkomnar.