Kastro Vefir
Vefsíðugerð, endurnýjun og viðhald. Skoðaðu verkefni, verð og hvað er innifalið.
Kastro Vefir
Sjálfstætt íslenskt tæknifyrirtæki
Kastro hannar og smíðar vefsíður, hýsir þær og heldur þeim við, og veitir ráðgjöf um Proxmox- og Ceph-innviði, skýjalausnir og tæknimál.

Samhliða eigin vöruþróun tökum við að okkur afmörkuð verkefni fyrir fyrirtæki. Umfang og tímasetningar eru staðfest áður en vinna hefst.
Staða nýrra verkefna: Takmarkað svigrúm.
Vefsíðugerð, endurnýjun og viðhald. Skoðaðu verkefni, verð og hvað er innifalið.
Kastro VefirProxmox og Ceph ráðgjöf á Íslandi. Reynsla af Proxmox frá 2017 og rekstri eins stærsta Proxmox-umhverfis landsins. Hönnun, yfirferð, flutningar og bilanagreining.
Skipulagning og framkvæmd verkefna í skýjaþjónustu, netþjónum og netkerfum. Val á þjónustuaðilum byggir á þínum þörfum, kostnaði og kröfum um staðsetningu gagna.
Skýjalausnir og innviðirVerð, umfang og mánaðarþjónusta eru á síðu Kastro Vefir. Skoða verð og umfang
Vefir sem Kastro Vefir hefur hannað og smíðað fyrir íslensk fyrirtæki.
Eitt eigið verkefni frá Kastro. Hýsill er í bið.
Íslenskur vettvangur til að smíða, setja upp og keyra hugbúnað. Hugmyndin er einföld: tengdu GitHub og fáðu virkt forrit yfir HTTPS án þess að þurfa að sjá um netþjón.
Þróunin er í bið vegna anna í öðrum verkefnum.
Öryggisþjónustan og ókeypis öryggisverkfærin Lookup, Dmark, DMZ og Critical.is eru nú hjá Garmi, systurmerki Kastro. garmur.is
Kastro á þessi .is-lén og tekur við tilboðum í þau. Ekkert ásett verð; sendu tilboð og við svörum persónulega.
Stutt og auðmunanlegt lén sem hentar vel fyrir vöru, app eða þjónustu fyrir heimilið.
Íslenska orðið yfir hest. Gott lén fyrir hestamennsku, ferðaþjónustu eða íslenska hestinn.
Öll tilboð eru skoðuð. Kastro áskilur sér rétt til að hafna hvaða tilboði sem er.

Andri Pétur Hafþórsson
Andri Pétur Hafþórsson þróar vörurnar og er tengiliður vegna þjónustu og tilkynninga um öryggisveikleika. Bakgrunnur hans er í kerfisstjórnun, tækniinnviðum, netöryggi og hugbúnaðarþróun.
Kastro er lítið fyrirtæki í rekstri eins manns. Þú hefur beint samband við þann sem ber ábyrgð á vinnunni.
ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.
Endurnýjaði tækniinnviði RVX, hannaði nýja starfsstöð með kröfur TPN Gold að leiðarljósi og leiddi fyrirtækið í gegnum vottunarferlið.
Þessi réttindi og reynsla tilheyra Andra. Þau fela ekki í sér vottun á Kastro eða vörum þess. Öryggisþjónustu veitir Andri undir merkjum Garms.
Öryggistilkynningar: andri@kastro.is

Spurningar um vefi, innviði, Hýsil eða verkefni? Hafðu beint samband. Við tökum að okkur afmörkuð verkefni eftir samkomulagi. Fyrirspurnir um vörur eru velkomnar.